fimmtudagur, mars 31, 2005

Mig vantar nýja tónlist! DC elskar mig ekki lengur.

Hmm, núna er ágætur tími til þess að blogga agnarlítið. Þetta er einn af þessu "bissí" dögum. Ég var að koma úr frönsku sem var búin kl. 4... og ég var að koma heim fyrir svona 20 mínútum... Þetta er einn af kostunum við að taka strætó. Ég hef verið að velta fyrir mér hvort það lesi einhver bloggin mín lengur. Gæði færslanna minna hefur minnkað stórlega í gegnum vikurnar, eins og flestir hafa kannski tekið eftir. Og ég er líka farin að minnka við mig... það er að segja, ég blogga ekki daglega lengur. Í náinni framtíð býst ég við því að það minnki... um sinn, eftir sirka 5 vikur og 1 dag get ég örugglega byrjað að blogga af fullum kraft, en fyrir það þarf ég víst að læra eitthvað smá líka. Ég segist alltaf vera að fara að læra en ég geri það aldrei. Án gríns, þá er ég búin að læra heima svona fjóru sinnum á þessu ári. Skólaári. Ég er greinilega ein af þeim sem þykist vera rosalega vel undirbúin en skítfell svo á samræmdu. En eins og nútímaunglingurinn myndi segja... érr bra ekki að kópa við þessu bressjuri *dæs* Ég er orðin ansi hrædd um að þetta blogghorn sé orðið svona seríótýpískt gelgjublogg sem hefur ekkert áhugavert fram að færa. En hvað get ég gert? Ég er steríótýpísk... aðalsteríótýpan í dag er þessi artífartí-wannabí rokkara/indí gella með smá dassi af hippa í sér... einhver sem reynir vonleysislega að skera sig útúr. Ef það að vera öðruvísi er í tísku... hvernig er hægt að vera öðruvísi? Með því að vera venjulegur þá? Og hvað er þá venjulegt, fyrst að vera öðruvísi er orðið venjulegt? Hmm... vá, þetta er smá pæling og ég er ekki einu sinni komin að þeim part.

Dagurinn: Eins og ég minntist á áðan þá er fimmtudagur langur að því leiti að ég sæki í viskubrunn sem er ekki fyrir mitt þroskastig, með öðrum orðum Menntaskólann í Kópavogi. Frönskutími var ekki skemmtilegur... mér finnst ég vera að detta afturúr, sem er reyndar alveg eðlilegt þar sem að ég sit hliðin á Erlu Dóru úbersjení. Það líður örugglega öllum þannig sem sitja hliðin á henni en ég meina, hvað hef ég uppúr því að geta pantað mér ommilettu á frönsku? Ég borða ekki einu sinni ommilettu! Hvað þá með sveppum. Aux champignons. Þar hafiði það. Skóladagurinn var ágætur... ég og Íris skemmtum okkur í leikfimi... *fliss* Við ákváðum að vera geðveikt austur-þýskar og fórum í svona hmm.... semi-rúbbí... veit ekki alveg hvernig á að útskýra það en fyrst vorum við bara að kasta á milli og einhvernvegin þróaðist það útí einhverskonar leik. Já... það var ágætt. En vá, þarf að drífa mig... er búin að skrá mig í eitthvað óvissubíó með félagsmiðstöðinni, þarf víst að fara að mæta. Ég er að hugsa um að klára postinn bara þegar ég kem heim, það kemur einhvervegin aldrei vel út þegar ég reyni að vera fljót að klára færsluna á mettíma og 3 mínútur eru bara enganvegin nóg. Þá er ég farin.
Jæja, ég kom heim fyrir hálftíma eða svo... íííísköld. Mér er ógeðslega kaaalt! Það er meira að segja erfitt að skrifa. Myndin sem að við fórum á var hmm... ekkert sérstök. Snérist mainly um að gera grín af sérstöku fólki (for the slow ones, þroskaheftum og mongólítum) og já, kannski var einhver góð meining í myndinni en sumt fólk í salnum var eiginlega bara grimmt og fór td. að hlægja að því þegar það kom mongólíti inn um dyrnar og fór með eina virkilega eðlilega, ófyndna línu. Mér fannst það asnalegt. Johnny Knoxville var samt ekkert hræææðilegur, var samt pirrandi hvað hann datt oft, aðallega af því að hann þolir sársaukann en ókey, ég skal hætta að tala um eitthvað sem ég veit ekkert um. Allaveganna þá tók endalausann tíma að labba heim afþví að ég þurfti að ræða svo mikið við Sunzu og Erlu, kom að lokum hálffrosin heim. Ég ætla svo að eyða afgangnum af kveldinu í að þiðna.

Pæling dagsins: Hmm... Einhver djúsí pæling... Æj ég veit ekki. Sökum reynslu... eða eiginlega skort af reynslu veit ég ekki hvort ég hafi rétt á að velta þessu málefni fyrir mér en ég og Erla Dóra vorum að velta fyrir okkur. Þegar maður er í sambandi, hvað á maður að bíða lengi þanga til að... hmm, hvernig á ég að orða þetta? Æj þúst... sambandið gengur lengra (vá þetta hljómar kjánalega, kennum Örnu frænku um þetta) oh, þið vitið vel hvað ég er að tala um. Gengur lengar, alla leið þá. Oh, screw censorship. Hvað á maður að bíða lengi með að ríða? Svo að maður sé nú ekki algjör hóra. Sunna Rós segir 2 ár... ég veit nú ekki alveg um það, ég myndi vorkenna greijið drengnum. Guðný segir hálft ár og Erla Dóra 2-3 mánuði. Arna frænka mín segir 3-4 vikur... Sko, ef Sunnar Rós er með siðferðiskennd í lagi er ég ekki með NEINA siðferðiskennd... hvað þá Arna frænka :) Tíhí... Þetta er svolítið skondið. Hvað er svona um það bil nógu langur tími til þess að vera ekki algjör drusla??? Mig langar að komast að niðurstöðu, endilega tjáið ykkur í skoðunum. Ekki það að ég þurfi að hafa þetta allt á hreinu, ég er bara að tjekka á siðferði lýðsins. Annars er ein önnur smá pæling... það er ball á morgun í félagsmiðstöðinni... bíómyndaball. Maður á semsagt að klæða sig upp eins og uppáhalds karakter úr bíómynd eða eitthvað svoleiðis... en ég bara veit ekkert hvað ég á að vera! Ég þarf hjálp með það, mig vantar auðveldar hugmyndir!!! Helst fyrir morgundaginn :D Okey, that about raps it up. Ég var reyndar búin að hugsa um fullt af hlutum til þess að skrifa en eins og svo margt annað þá hurfu þessar hugmyndir í djúpa afkima götótta minnisins míns. Well... ég er farin í sturtu að þiðna. Það er ekkert eins gott og 40 gráðu heit sturta....uuh... nema kannski súkkulaði.... og fullnægingar.... og ískalt kók...og, æj forget it.

Kv.Andrea

11 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

humm what about orgasm in the shower while eating chocolate ?
now thats a question !

fimmtudagur, mars 31, 2005 10:11:00 e.h.  
Blogger Gummi said...

Daphne úr Scoopy Doo! :D Ég veit ekki með pælinguna. Ég hef ekki mikla reynslu af þessu og held að ég myndi bara nýta tækifærið ef það gæfist. Ekki það að ég stykki upp á hverja þá stúlku sem byði mér sig, en ef ég væri í sambandi þá væri mér alveg sama hvenær þetta gerðist held ég. Mér finnst 2 ár hins vegar vera of langt.

fimmtudagur, mars 31, 2005 10:59:00 e.h.  
Blogger Gummi said...

Eða bara Jenna Jameson í....ja bara öllum myndunum hennar! :D

fimmtudagur, mars 31, 2005 11:29:00 e.h.  
Blogger Gummi said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

fimmtudagur, mars 31, 2005 11:29:00 e.h.  
Blogger Andrea said...

Æj koma svo... alvöru hjálp! Afhverju vilja allir að ég komi nakin á ball!?!?! ég þarf alvöru hugmyndir. Jafnvel Sunza sagði mér að líma nokkur rósablöð á mig og koma sem leiðinlega gellan í american beauty...
jeeez

föstudagur, apríl 01, 2005 12:58:00 f.h.  
Blogger Benedikta said...

2 ár eru ALLT of langur tími!! hver er eiginlega þessi Sunna Rós? ég segi 4 vikur circa... eða styttra...

föstudagur, apríl 01, 2005 9:32:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

2 weeks, 3 weeks, doesn't matter... það er ekki það að þið byrjuðuð of snemma sem að skemmir sambandið,ef svo fer, þannig að go enjoy the wonders of SAFE sex...
Kv. Edda hin gifta vinkona Benediktu

föstudagur, apríl 01, 2005 12:31:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Uh fer það ekki bara eftir aðstæðum?... annars vona ég að hugmyndir að persónu í sófanum hafi e-ð hruflað við hausnum á þér... fengið þig til að hugsa meina ég...

*ah lehí ahúah*/*a lady of war*

föstudagur, apríl 01, 2005 2:20:00 e.h.  
Blogger Esox lucius said...

já og svo...
réttur tími er sá þegar þú treystir viðkomandi nógu mikið til að fara út í þetta. þetta er ekkert gaman án þess að þú treystir viðkomandi og þarft að hafa áhyggjur að hinu og þessu... mundu svo... öruggt kynlíf er gott kynlíf.. mundu "það er skárra að biðja gaurinn um að nota smokk heldur en að biðja mömmu vinkonu þinnar/ sæta strákinn sem að vinnur í apótekinu um neyðarpillu..."

föstudagur, apríl 01, 2005 3:57:00 e.h.  
Blogger Benedikta said...

Hey! good news, or sum :D ég ætla að reyna að endurlífga blogspot síðuna mína í þriðja skiptið :D sjáum hvernig það gengur í þetta skiptið....so.. http://benedikta.blogspot.com , check it out kjelling! (inner "hnakk" breaking out) ég var líka alveg ógisslega dugleg við að breyta litunum :)

föstudagur, apríl 01, 2005 5:16:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Now when did I say that? Hmmmmm.....Ahhhh nú man ég þegar ég var að skamma erlu dóru oh well hélt nú ekki að þetta yrði haft eftir mér þar sem ég veit nákvl. ekkert um kynlíf...en ég var nú bara að ýkja (en Erla Dóra ég spyr, HVað varð um trúnað milli vina...you are pullin a Meltface (eins og þú og ragga k´jósið að kalla) on me...ég er allskostar ekki sátt) ennnn...já ég hef bara ekkert að segja nema hvað að ég er ein heima og á eftir að verða í alla nótt þannig ef einhver les þetta fyrir klukkan ellefu í fyrramálið(þá fer ég að vinna) má sá aðili endilega kíkja i heimsókn...

sunnudagur, apríl 03, 2005 12:51:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home