miðvikudagur, júlí 19, 2006

Goat on a pole?

Til allra þeirra sem hafa sitið heima í vangaveltum og svitnað um lófana þá já, gleraugun mín eru fundin. Þau voru innan í kaktus. Já, kaktus. Annars hef ég ekki mikið að segja, en fyrst enginn virðist vera að blogga ætla ég að taka af skarið og gera það.

Sem stendur er ég að horfa á sjónvarpið, einhvern hræðilega kjánalegann gaur að nauðga White Rabbit í ósmurt sparigatið. Virkilega ósmekklegt. Ég skil ekki hvað fólk sér eiginlega við þetta Rock Star: Supernova dæmi. Núna er Jason Newsted að flexa byssurnar fyrir áhorfendur og táningsstúlkurnar gráta. Svona í alvöru, er þetta ekki brandari? Og svo virðist sem alþjóð sé að fylgjast með þessum þætti bara afþví að "okkar maður" er í honum. 65 ára kokkur á vinnustaðnum mínum, sem notabene hlustar á Bylgjuna, er að missa sig yfir þessu. Og flestallt eldra fólkið á vinnustaðnum mínum líka. Og þetta fólk veit ekki einu sinni hvernig lögin sem Magni er að taka hljóma í alvöru. Mér finnst þetta bara asnalegt. Þó ég gruni kokkinn um að fylgjast bara með fyrir brjóstaskoruna á Brooke Burke. Og ég spyr sjálfa mig, hvað er ég eiginlega að gera að horfa á þetta? Ég gæti verið sofandi, og ég ætti að vera sofandi. Stundum furða ég mig á því hvernig ég get tekið svona margar lélegar ákvarðanir á hverjum degi án þess að læra af því.

Já, ókey. Ég er hef lært af mistökum mínum... og núna ætla ég að fara að sofa. Wait wait. Nei, ég ætla í Bubbleshooter. Fyrir alla sem þurfa að drepa tíma mæli ég með þessu: www.goatonapole.com/

Kv.Andrea

9 Comments:

Blogger Andrea said...

KOMA SVO, FÓLK!

laugardagur, júlí 22, 2006 7:03:00 e.h.  
Blogger Unknown said...

Kaktusar eru varasamir.

Ég hafði ekki mikla virðingu fyrir rockstar en eftir að hafa heyrt um að fólk sé að hlusta á white rabbit eins og motherfuckers eftir að hafa heyrt versta performance þess síðan ég veit ekki hvað finn ég ekki fyrir neinu öðu en biturleika gagnvart þessum þætti.

Tommy Lee er samt frekar steiktur og hress.

sunnudagur, júlí 23, 2006 4:41:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Go ask Alice , I think she knows

Ég hata sól, elska geitur
tharfnast úmpfs

ég er of emo

gledilega hatíd
já mér finnst leidinlegt thegar folk tharf svona thaetti til ad uppgotva goda tonlist , annars jata eg ad white rabbit nadi ekki til min fyrr en eg heyrdi thad spilad undir í badatridi Dr.Gonzos

þriðjudagur, júlí 25, 2006 10:48:00 e.h.  
Blogger Unknown said...

Who can say where the road goes?

Where the day flows?

Only time.

miðvikudagur, júlí 26, 2006 6:12:00 e.h.  
Blogger Benedikta said...

Ég komst ekki hjá því að hugsa til þín þegar ég var neydd til þess að horfa á þennan þátt núna um daginn.. (ok, ekki neydd, en mútað með Vodka í magic..) og ein kellan tók þarna 'Time after time'.. minnti mig á fara-að-sofa-barnaplötuna þína ^^

föstudagur, júlí 28, 2006 3:37:00 e.h.  
Blogger Andrea said...

Ah! Sú plata rokkar mest af öllu. Hún er geðveik. Ég er alltaf að heyra lög í útvarpinu sem ég þekki en hef samt aldrei heyrt áður, sem eru af þessari plötu. Það er rokk.

laugardagur, júlí 29, 2006 5:24:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Andrea mig langar í þann disk , á erfitt með að sofna

sunnudagur, júlí 30, 2006 10:01:00 e.h.  
Blogger Andrea said...

Já Anonymous, ef þú nafngreinir þig gæti ég jafnvel fjölfaldað tjéðan disk fyrir þig. Jafnvel.

mánudagur, júlí 31, 2006 12:44:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég held að ég sé ekki goatonapoleist. Ég trúi á Fíla á hjólaskautum...It's the only way to go!

laugardagur, ágúst 05, 2006 10:04:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home