miðvikudagur, maí 10, 2006

Fæðingarhálfviti.


Ég skrifaði langa langa færslu um lífið og veginn, og smellti smá getraun inní og alltsaman en svo þegar hún var tilbúin og ég ætlaði að pósta henni hugðist ég vera sniðugt og gerði ctrl + A og svo ætlaði ég að gera ctrl + C en ýtti óvart á V í staðin, og fyrir þá sem kunna ekki á lyklaborð þýðir þetta að öll færslan hvarf og það sem ég kóperaði seinast kom í ljós. Þarna varð viska mín mér að falli. Kannski blogga ég aftur í bráð en sem stendur ætla ég að velta sjálfri mér uppúr sjálfsvorkunn sem ég er búin að vera safna í uppblásna barnalaug útá svölum. Þakkir, og sjáumst seinna.

Kv. Andrea

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ég gef þér 7 fyrir viðleitni.

miðvikudagur, maí 10, 2006 10:45:00 e.h.  
Blogger Höjkur said...

undo?

fimmtudagur, maí 11, 2006 4:33:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ég segi það sama og Haukur...

en já, það er of seint fyrir það.
Leikum um helgina!

fimmtudagur, maí 11, 2006 8:26:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Emm.. "ctrl + z"

Svona til að svekkja þig meira :]

laugardagur, maí 13, 2006 7:21:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home