Úff
Jæja... Ég var að ryksuga um daginn og allt í góðu með það...jæja, var ég ekki komin efst með suguna og var að ryksuga fyrir ofan stigann þegar þessi líka trítilóða gula ryksuga fjölskyldunnar keyrði bara beint í sköflunginn minn og ég náttla bara "ááá*nokkur óprenthæf orð*ááá og sparkaði í ryksuguna í reiðikasti. Þá hoppaði ryksugan góða niður tröppurnar og lenti í molum fyri neðan mig og ég bara "öhh" og það var náttla greinilegt að hin illa ryksuga var að klína á mig að hafa hrint henni niður stigann, sveiattan! Kom ekki mamma askvaðandi inn um dyrnar og horfði fyrst á mig, svo á ryksuguna, svo aftur á mig og svo bara var eins og það rynni á hana æði og bara !!!RWARWRAWRAWRAAA!!! Algjörlega brjáluð með ásakanir eins og "hún var glæný" og " allt sem þú snertir er ónýtt á klukkutíma!" á meðan ég reyndi í öngum mínum að sannfæra hana um að umrædd ryksuga hafa verið djúpt í sjálfsmorðshugleiðingum(ekki skrítið miðavið skítinn sem hún sígur) og gert þetta algerlega sjálfviljug, en hún trúði mér því miður ekki. Ætli nokkur viti hvað síðustu hugsanir þessarar gulu ryksugu hafi verið, minning hennar lifir allavega...
Kv. Andrea
Kv. Andrea
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home