þriðjudagur, desember 02, 2003

Ich!

Ég er veik! Ekkert skemmtilegt við það, nei nei, alls ekki... er samt ekkert raunverulega veik, bar ameð magapínu og túrverki frá helvíti, en tókst samt sem áður að plata elskulega móður mína með mínum óumdeildu leikhæfileikum mínum. enda stóð nú einu sinni í einhverri strjörnuspá að meyjan væri svo góða að gera sér upp veikindi að hún sannfærir sjálfa sig stundum um að hún sé í alvöru veik... held að mér hafi tekist það, því mér er massíft illt í maganum og sonna. Veit nú ekki alveg um þennan skemmtilega hæfileika. Anyways...einmitt núna lít ég út eins og gröftur upp úr gröf svo ég ætla bara að fara að skella mér í sturtu og vona að útkoman verði eitthvað betri, svo á ég nú líka eftir að læra einhvern helling og þótt maginn á mér sé að liðast í sundur held ég að það sér ráðlegt að fá sér eitthvað að eta. Annars er nú ekkert skemmtilegt búið að henda mig í dag, afskaplega tilbreitingalaus tilvera hér í Hásölum 11. Jæja, ætli ég fari ekki og skoli skítinn burt af kjötstykkinu sem kallar sig líkama minn...

Kv. Andrea

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home