þriðjudagur, júní 24, 2003

MÁNUDAGUR

HOWDY!!! Það er komið kveld og loksins er ég í skapi til að skrifa.

DAGURINN: Í dag vaknaði ég snemma og fór niður í vinnuskóla að sækja mér um leiðinlegustu vinnu sem ég get ýmindað mér (og örugglega þá einu sem ég get fengið) og það kom í ljós að ég byrja eftir viku í þrælabúðunum en nóg um það. Síðan fór ég heim að lúlla og nerdast og glápa á rykugar disneyspólur úr ungdóm mínum. Svo kom pabbi heim og þá drattaðist ég niður í bílskúr að telja flöskur og shit. Síðan hélt ég úr húsi og fór með föður mínum á sorpu og fekk pening fyrir umbúðir sem ég skilaði. Síðan fórum við á bókasafnið og í búðina og síðan heim og þar hangaði ég þanga til að ég fann yfirþyrmandi þörf fyrir að fá kók og rölti mér niður í Nettó. Á leiðinni fékk ég nasasjón af því sem ég fer að vinna við eftir nokkra daga og vá! þvílíkyur hryllingur! hlakka sko ekki til. Svo kom ég heim aftur og kláraði kókið og fór eikkað að nerdast, svo kom matur og svo fór eg að glápa á imbann og ekki er nú mikið að segja um það svo dagur er bara búinn hjá mér í bili. Takk fyrir mig.

PÆLING DAGSIS AFTUR: afhverju er ég að pæla í þessu? að gera 2 pælingar í dag?? það er skrítið að pæla um pælinu, þá byrjar maður að pæla í einhverju allt öðru bra ósjálfrátt! skrítið!

farin að lúlla mér í litla hausinn...kv. Andrea

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home